157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:05]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Jú, af hinu fullkomna og alþekkta lítillæti meiri hlutans þá er þetta hluti af því að kalla samgönguáætlunina fullfjármagnaða, að stofna félag sem er illa búið um og svolítið sérkennilegt félag. Ég mun fara betur yfir það. Það á sjálft að taka ákvarðanir. En ef félagið myndi taka þessa ákvörðun, þegar það er komið á koppinn, að Kjalarnesvegar færi þarna inn og þær framkvæmdir sem þar eru, þá hugsanlega yrði svigrúm í samgönguáætlun til að færa til einhverja fjármuni upp á 6,3 milljarða. Þetta er auðvitað í fyrsta lagi augljóslega sönnun fyrir því að samgönguáætlunin er ekki fullfjármögnuð.Í öðru lagi er þetta viðurkenning á því að það er fullt af öðrum verkefnum. Það telur meiri hlutinn reyndar upp í meirihlutaálitinu sínu, eins og t.d. að það sé skynsamlegt að leggja fram einhverja ferjuáætlun, en það er ekki króna í það. Það vantar stórkostlega fjármuni inn í sjóvarnir og ef þú tekur peninga af þessu horni er kannski skynsamlegt að reyna að nýta þá á sama svæði. En fyrst og fremst er þetta sönnun þess að samgönguáætlun er engan veginn fullfjármögnuð þegar framkvæma á öll verkefnin, sem meiri hlutinn vill fara í, með peningum sem hugsanlega verða til þegar eitthvert innviðafélag tekur loksins til starfa.