samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Önnur staðfesting á því að þessi samgönguáætlun er ekki fullfjármögnuð vegna þess að hér er einhver froða. Staðreyndin er þessi: Þessi ákvörðun ráðherrans er pólitísk ákvörðun fyrst og fremst og ber að líta á hana sem slíka. Ríkisstjórnin verður að standa og falla með því og viðurkenna að það er ekkert faglegt á bak við þessa breytingu á jarðgangaáætluninni. Þetta er bara pólitísk ákvörðun. Það er líka jafn mikil staðreynd að þau göng sem koma til greina að mati ráðherrans, þ.e. Fljótagöng, göng gegnum Súðavíkurhlíð og síðan þá önnur göng á Austfjörðum, eru öll sama marki brennd að í þau verður ekki farið nema með einhverjum stuðningi úr ríkissjóði. Ef eitthvert félag; innviðafélag eða einhvers konar félag eins og Spölur, á að framkvæma það þá þarf þar að vera umtalsvert eigið fé og árleg framlög. Það er ekki króna sem þessi ríkisstjórn setur í það, með öðrum orðum augljóslega ekki fullfjármagnað. En það sem verra er, það er eins og þau viti ekki nákvæmlega hvernig þau ætla að framkvæma þetta þó að þau tali digurbarkalega.