samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er rétt að allt það sem meiri hlutann langar til að gera, og okkur öll, bara viðurkennum það, að gera miklu meira, er háð því að það verði til eitthvert hókus-pókus félag með einhverjum hókus-pókus hætti sem taki verkefnin út úr samgönguáætlun og þannig skapist svigrúm til að gera alls konar. Ég held að stóra myndin sé þessi, að það vanti árlega að lágmarki 10 milljarða og helst 15 í samgönguáætlun. Jafnvel er hægt að reikna sig upp í stærri tölur en við bara horfum til þess sem var í fyrri samgönguáætlun. Hugmyndafræðin um að sveitarfélög geti einhvern veginn komist framar í einhverri forgangsröð að mati Vegagerðarinnar út frá öryggissjónarmiðum eða umferðarþunga eða öðru er skiljanleg en hún er varhugaverð. Ef það eru ekki til fjármunir til að borga það upp þá sitja menn uppi með furðulegum hætti — ég óttast að sveitarfélögin sitji þá uppi með reikninginn, þurfi að fjármagna það sjálf og ríkið komi aldrei með krónuna. Þannig að ég held að þessi hugmynd sé skiljanleg en hún er varhugaverð að mínu mati.