157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:12]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Maður hefur heyrt þessa gagnrýni sem er líka skiljanleg en eitthvað verður að gera. Mig langar að koma stuttlega inn á einbreiðar brýr af því að hv. þingmaður lyfti grettistaki hvað það varðar á Suðurlandsundirlendinu. Núna þegar maður keyrir yfir Jökulsárlón t.d. er það mjög varhugaverð brú öryggislega séð og þá eru átta einbreiðar brýr þarna eftir. Ég væri til í að heyra sjónarmið hv. þingmanns, hvernig hann sér þessa uppbyggingu eiga sér stað í framtíðinni á einbreiðum brúm, af því að maður sér það ekki í þessari samgönguáætlun. Um þetta svæði keyra flestir ferðamenn sem koma til Íslands enda afskaplega fallegt. En ég væri til í að heyra skoðun hv. þingmanns á forgangsröðun hvað varðar þetta verkefni á þeim tveim brúm sem eru eftir.