157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:13]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að það hefur áunnist heilmikið og til að mynda á veginum um Djúp hefur náðst að útrýma eða fækka einbreiðum brúm gríðarlega mikið. Það er í raun og veru þannig að því færri einbreiðar brýr sem verða eftir þeim mun hættulegri verður hver og ein þeirra. Ef það eru eintómar einbreiðar brýr læra menn fljótlega að fara varlega en ef þær koma vegfarendum á óvart eru þær í raun og veru hættulegri, þannig að það er enn mikilvægara að klára þetta. Bæði í Öræfunum og í Lóni er spurning um að færa veg og þá myndi fækka um þrjár brýr á hvorum stað. Ég held að þetta séu verkefni sem voru komin lengra en er verið að ýta aftar í þessari samgönguáætlun. Stóru brýrnar eins og yfir Jökulsárlón á Breiðamerkursandi, á Fjöllum, Lagarfljótið og fleiri slíkar brýr eru stór verkefni sem þarf að finna leið til að setja einfaldlega fjármagn í á næstu árum. Þær eru bara orðnar það gamlar, samanber líka gömlu brúna yfir Ölfusá. Ég myndi bara segja enn og aftur: Það vantar fjármagn til þess að geta gert það sem alla langar til að gera hér. Ríkisstjórnin þarf bara að viðurkenna það. Þessir 18,3 milljarðar sem hún þóttist ætla að setja í vegaframkvæmdir úti á landi urðu 7 og þeir fara allir hér í höfuðborgina.