samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Nú langar mig að við færum okkur aðeins nær því kjördæmi sem ég er fulltrúi fyrir og ég veit að þessi reyndi þingmaður og samgöngumálaráðherra eða innviðaráðherra til margra ára er mjög kunnugur og hefur komið mörgum góðum umbótamálum í gegn þar. Er mér ferskast í minni það að klára tvöföldun á Reykjanesbraut, sem búið var að bíða eftir lengi, og þó að þingmaðurinn hafi ekki klippt á borðann var það að hans frumkvæði sem það kláraðist.
Mig langar að fara aðeins í, það er stuttur tíminn hérna eins og við vitum, að það er náttúrlega afar stórt verkefni inni í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem við þekkjum bæði og varðar lausn á þessari teppu sem myndast á Lækjargötu og Álftanesvegi á Reykjanesbrautinni, sem er gríðarlega brýnt verkefni fyrir Hafnfirðinga og alla sem fara um þessa braut til Reykjaness og til alþjóðaflugvallarins. Nú hafa Setbergsgöng, sem Hafnfirðingar a.m.k. eru mjög spenntir fyrir og telja langbestu lausnina, verið stjörnumerkt í samgöngusáttmálanum, sem þýðir að þau komi til greina sem verkefni inn í innviðafélagið og mig langar að fá viðbrögð þingmannsins við því.