samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, það er hætt við því að það sé verið að búa til einhverjar óraunhæfar væntingar með því að hafa þetta stjörnumerkt í samgöngusáttmála en svo fylgir því alls ekkert fjármagn, útfærslan er eftir og ekki einu sinni vitað hvernig innviðafélagið á að virka, hvað þá meira. Við erum sömu skoðunar hvað það varðar. En orð eru til alls fyrst og það er óneitanlega spennandi tilhugsun að setja þessa brýnu framkvæmd — sem verður dýrari en samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins hefur sett fjármagn til eins og sakir standa. En eins og ég segi eru orð til alls fyrst og við munum fylgjast grannt með því hvernig því vindur fram. Það voru einmitt samgöngumál á því svæði sem ég er fulltrúi fyrir, og við mörg hér inni auðvitað, á höfuðborgarsvæðinu, sem voru eitt helsta kosningamálið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna hér á þessu svæði, og það var í fyrsta skipti sem menn muna eftir. (Forseti hringir.) Það hefur borið á því, það er bæði inni í málefnasamningum sveitarstjórna sem hafa tekið við á svæðinu — og í aðdraganda kosninganna var mikið talað um endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hvaða viðhorf hefur hv. þingmaður til þess?