157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:20]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi frú forseti. Ég tel að samstarf sveitarfélaga hérna á höfuðborgarsvæðinu þurfi að dýpka hvað varðar þessi stóru svæðisskipulagsmál, þar á meðal uppbyggingu á meginleiðum. Til að mynda þegar sveitarfélögin stækka, og ég held að það sé þörf á því að taka upp svæðisskipulagið, þá þurfa menn að átta sig á því að eins og í öllum öðrum bæjum og borgum þurfa að fylgja einhverjar svona meginstofnleiðir. Þær eru þá oft ofan eða utan við bæina og það þarf að vera tenging þar í gegn. Þegar þessi samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins varð til var hann auðvitað ekki meitlaður í stein, enda er búið að endurskoða hann einu sinni. Þetta er lifandi plagg og mér finnst fullkomlega eðlilegt að sveitarfélögin setjist niður og ræði um það.

Varðandi hvort það sé innviðafélag eða hvernig eigi að framkvæma einstaka hluta þessa sáttmála, eins og göng undir Miklubraut eða göng undir Setberg, þá finnst mér miklu eðlilegra að það sé gert innan Betri samgangna. Hversu flókið á þetta eiginlega að vera í þessu litla landi okkar? Betri samgöngur, innviðafélag, Vegagerðin og eitthvað enn þá fleira. (Forseti hringir.) Ég held að það sé miklu einfaldara að þar sé tekin ákvörðun um mismunandi framkvæmd og hugsanlega mismunandi endurgreiðsluráð sem notkunargjöld við slíkar framkvæmdir, og ekkert að því.