samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Ég vildi spyrja hv. þingmann, vegna þess að hann víkur auðvitað að þessum grundvallarbreytingum sem voru gerðar á milli samgönguáætlana í forgangsröðun í jarðgöngum. Þá er stefnt að Fljótagöngum sem eru auðvitað, eins og margir jarðgangakostir á Íslandi, mjög spennandi framkvæmd fyrir svæðið út frá ýmsum sjónarmiðum, en engu að síður hefur þetta þá þýðingu sem það hefur fyrir Austurlandið. Hafandi þá reynslu sem hv. þingmaður hefur af þessum málum, hvernig horfir framtíð jarðgangagerðar við honum á allra næstu árum út frá Fljótagöngum og svo því sem mögulega kemur á eftir því? Finnst honum að búið sé að varpa óvissu yfir allan málaflokkinn með svona breytingum eða hvernig lítur hann á málið?