samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er alla vega ekki búið að búa um alla hnúta. Það liggur í augum uppi. Og það liggur líka í augum uppi, eins og ég nefndi hérna líklega í andsvari við hv. þm. Jens Garðar Helgason, að öll jarðgangaverkefni sem eru úti á landi eru öll þau því marki brennd að þar er ekki nægilegur umferðarþungi, nægilegur fjöldi bíla, sem mun borga niður fjárfestinguna á 20, 25, jafnvel 30 árum. Þá getum við auðvitað farið að horfa til þess hvernig Færeyingar gera hlutina. Það var á þann veg sem ég hafði horft til, að við myndum stofna einhvers konar jarðgangafélag, sem væri þá hluti af einhverju innviðafélagi eða einhverju slíku, hugsanlega með hverri deild fyrir sig, þar sem annars vegar væri nægjanlegt eigið fé í þessu félagi og síðan þyrftu að vera árleg framlög í samgönguáætlun eða beint úr ríkissjóði til tiltekinna verkefna til að þau gætu staðið undir sér, ekkert ósvipað því sem var gert í Færeyjum. En meiri hlutinn klárar þetta mál bara ekki. Hann bara hendir upp einhverju innviðafélagi sem er fjárfestingarfélag og það mun aldrei velja þessi verkefni. Þess vegna er fullkomin óvissa um það hvernig á að fara í framhald og hvernig á að fara í framkvæmdir.