157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:26]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef fulla trú á því að af öllum þessum jarðgöngum verði. Þegar við settum fram í samgönguáætluninni 2023 lista yfir, ef ég man rétt, 15 jarðgöng, sem var í fyrsta skipti sem slíkur listi var lagður fram, þá sá ég fyrir mér að við myndum búa til félag með þeim hætti sem ég var að lýsa hér áðan, sem gæti farið í fleiri en tvö og fleiri en þrjú verkefni í einu. Við yrðum bara að sætta okkur við það, alveg eins og Færeyingar hafa sætt sig við, að það skipti meira máli að framkvæma meira núna þegar við þurfum á framkvæmdunum halda, betri samgöngum um land allt, og taka okkur lengri tíma í að greiða þær niður. Með öðrum orðum að taka lán og greiða þau síðan til baka með einhvers konar notkunargjöldum, skuggagjöldum eða hvaða leið við viljum síðan fara við það. Það er svo bara útfærsluatriði. Meiri hlutinn, með þessari samgönguáætlun og þeirri útfærslu sem þau kynna hér með innviðafélaginu, skilar hér auðu eða skilur málið eftir í fullkominni óvissu, sem við munum fara betur yfir þegar við fjöllum um innviðafélagið seinna í umræðunni.