samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans ágætisræðu. Mig langar aðeins að velta því upp og spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér í því að miðað við að við erum að horfa hér á samgönguáætlun þá eru þar mjög vafasamar forsendur fyrir því að hægt sé að fara í þær framkvæmdir sem talað er um. Samgönguáætlunin er ekki fullfjármögnuð. Það er mjög óskýrt hvað kæmist inn í innviðafélagið o.s.frv. og þar með, eins og við höfum nú rætt hér, Fljótagöngin sem líklega komast ekki inn í innviðafélagið strax. Þá eru ekki til neinir peningar í Fljótagöngin o.s.frv., 6,3 milljarðar sem er búið að lofa hér í einhverjar aukaframkvæmdir ef Kjalarnesvegur fer inn í innviðafélagið, alls konar svona óvissa. Er ekki í rauninni bara eina vitið, miðað við hvað á eftir að ræða og fara yfir, að bíða með bæði innviðafélagið og samgönguáætlun fram á haustið?