157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:34]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, þetta er áleitin spurning og það má vel taka undir þetta eins og þingmálin líta út og að fenginni reynslu undanfarinna ára í meðferð t.d. samgönguáætlunar og þeirra snörpu breytinga sem menn hafa leyft sér að gera, jafnvel þótt allt liggi samþykkt fyrir og menn hafi verið fremst í röðinni um langa hríð, en svo breytist það. Út frá þessari pólitísku óvissu sem er orðin landlæg í allri umræðu um samgöngumál myndi maður sannarlega taka undir það að þrátt fyrir samþykkt þessara tveggja þingmála, sem hv. þingmaður vísar til, hvort sem er samgönguáætlunin eða innviðafélagið, þá fæst litlu meiri festa í þennan málaflokk en án samþykktarinnar. Að gefa sér tíma í að vinna það betur tel ég varla að ætti að koma að sök, þótt maður fari nú síst að gefa einhver sérstök fyrirmæli um afgreiðslu þingmála hér, en umræðan er vel þess virði.