samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að þegar við förum af stað með, eins og hv. þingmaður lýsir, fyrirhuguð hærri veggjöld á ýmsum stöðum, almenn veggjöld, alls konar nýjungar í skattlagningu gagnvart umferðinni, þá finnst mér sannarlega að það geti aldrei gerst nema í samhengi við einhvers konar heildarendurskoðun, ef maður segir sem svo, að ef það er verið að bæta við einhverju sé heildarendurskoðun á öllu kerfinu, þá sé farið yfir það hvernig gjöldin liggja núna, hvort það sé réttlætanlegt að bæta við ofan á það eða hvort þurfi að fella gjöldin á einhvern hátt í heilsteyptari farveg þannig að menn viti einfaldlega að þetta séu gjöldin í stað þess að það sé með hverju þingmálinu á fætur öðru hlaðið auknum veggjöldum á menn eða einfaldlega álögum vegna notkunar bifreiða, hvort sem það er í bifreiðagjöldunum sjálfum, kílómetragjaldi eða veggjöldum.