157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:39]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir ágætisræðu. Ræðutíminn er stuttur þannig að menn koma ekki miklu að. En mér fannst athyglisvert það sem hv. þingmaður var að tala um með innviðafélagið og arðbærar framkvæmdir. Hann nefndi, að mig minnir örugglega, Sundabraut og svo Vaðlaheiðargöng. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er það hvaða áhrif þetta hafi svona á heildarmynd samgangna í landinu. Munu þær framkvæmdir sem eru arðbærar birtast okkur fyrr eða mun þetta breyta einhverju í forgangi almennt fyrir fólk? Þegar fólk er að horfa hér á umræðuna og býr einhvers staðar í miklu dreifbýli og það hefur kannski væntingar um að einhverjar samgöngubætur verði þar eftir einhver ár og aðrir sem búa í þéttbýli — ef þetta gengur allt eftir sem ríkisstjórnin vill að gangi eftir, mun verða breyting á þessu? Hvað telur hv. þingmaður?