157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:41]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Mín áhersla í þessu er bara að vekja athygli á jafnvæginu á milli þess að geta búið til góða og fallega markaðshvata í framkvæmdir þannig að þær komist virkilega af stað, og síðan hins, að þessar aðgerðir og jarðgangagerð almennt, þau verkefni hafa ekki alltaf lotið lögmálum arðseminnar heldur markast þau af ýmsum öðrum sjónarmiðum sem menn eru að vinna á. Þau sjónarmið eru ekkert alltaf heldur í takt við framboð og eftirspurn, heldur er þetta svona stærri samfélagsleg mynd sem við þurfum bara að gæta að að nýtt innviðafélag geti tekið mið af en fari ekki á sjálfstýringu gagnvart eintómri arðsemi, rétt eins og manni finnst heldur ekki að menn eigi að vaða áfram í þessum verkefnum alveg án þess að spyrja sig í hvaða skuldir þeir eru að steypa sér með því. Það er þetta jafnvægi sem við erum að leita að og það er ekkert einfalt að finna það. Það verður ekkert endilega alltaf fundið þannig að allir séu sáttir en það á engu að síður að vera leiðarljósið.