samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir góðar vangaveltur. Ég held að það sé efni í mikla umræðu að fara að tala um væntingastjórnun í tengslum við samgönguáætlun. Samgönguáætlun er einmitt spurning um væntingastjórnun. Ég held að það sé alltaf þannig að við gerum áætlanir fram í tímann og svo er æðimisjafnt í þessum bransa hversu vel er staðið við þær áætlanir. Það hefur ýmislegt verið sett á dagskrá í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og annars eins hérna í Reykjavík á síðustu árum þar sem alls konar vegaframkvæmdir og stofnvegaframkvæmdir og miklar framkvæmdir, hvort sem það er að setja hvaðeina í stokk eða göng, eru boðaðar á strætóskýlum fyrir kosningar. En svo bara líður kjörtímabilið og ekkert gerist þannig að við erum auðvitað öll orðin svolítið tortryggin gagnvart yfirlýsingum. Ég er þeirrar skoðunar að menn ættu að reyna að draga úr verðbólgu yfirlýsinganna í stjórnmálunum.