samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Mig langar til að koma aðeins inn á innviðafélagið og samgönguáætlun í samhengi við fjármálaáætlun. Nú vitum við að það er t.d. mikill óstöðugleiki á olíumörkuðum, ekki síst eftir fréttir dagsins í dag. Við vitum að það var verið að hækka stýrivexti í Evrópu og allt hefur þetta auðvitað áhrif hingað heim og það er fyrirséð að það verði þar af leiðandi hærri kostnaður sem fylgir framkvæmdum heilt yfir. Bara ef við tökum malbikun eina og sér erum við að tala um að það sé hærri kostnaður við einstakar framkvæmdir vegna þeirra atburða sem eru að eiga sér stað í þessum töluðu orðum.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Við höfum farið yfir að forsendur fjármálaáætlunar séu mjög veikar. Telur hv. þingmaður í ljósi þessara áskorana og þróunar á alþjóðamörkuðum að það sé hægt að tala um, eins og hæstv. ríkisstjórn gerir, að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð?