samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það má náttúrlega nefna mörg verkefni. Auðvitað erum við að ræða Sundabrautina og einmitt í samhengi við göng, það er talað um Sæbrautarstokkinn á þessu svæði þar sem umferðin á að fara undir stokk og yfir stokknum eiga að vera — það er ekki akandi umferð en svona eitthvað alls konar. Það væri mikil bót ef Sæbrautin væri þarna upp úr þar sem Skútuvogur er og fer inn í hverfið og inn á Sæbraut frá Reykjanesbrautinni. Ef það væri í stokk þá myndi auðvitað losna um verulegt pláss þarna á yfirborðinu. En í svona samgönguframkvæmdum þá erum við samt alltaf að hugsa: Ókei, umferðaræðarnar yrðu samt enn þá jafn margar þarna þannig að stíflurnar myndu kannski ekki skána neitt yfirgengilega mikið. Þegar við erum að hugsa um þessa kosti þá þurfum við líka að hugsa: Jú, sannarlega gott að skapa betra rými fyrir hverfið og betra flæði þarna á milli og auðvitað betra fyrir börn og annað. Það er sannarlega verðmætt. En er, fyrir ótrúlega mikla peninga, hægt einhvern veginn að liðka fyrir umferðinni og gera hverfin samt vistlegri? Þetta eru sjónarmið sem vegast á.