samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar til að byrja á að spyrja þingmanninn út í þróun tækni. Við erum að tala um risavaxna fjárfestingu sem er mikilvæg. Ég get tekið undir með hv. þingmanni, ég held að það skipti ekki máli hvort við erum að tala um samgöngur, virkjanir eða einhver önnur stór mannvirki; þær eru oft umdeildar meðan á framkvæmdum stendur hið minnsta. En þegar kemur að samgöngum er tæknin á fleygiferð. Við ræddum það hér í gær að í San Francisco séu t.d. um 1.000 sjálfkeyrandi bílar. Ef maður horfir á ákveðnar borgir í heiminum þá hafa hlutir eins og skíðalyftur verið þróaðar sem samgöngubætur. Ég verð að segja að sjálf gæti ég vel hugsað mér að svífa niður Ártúnsbrekkuna bara ofan á núverandi umferð með slíkri tækni.
Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji að við séum nógu djörf í skapandi lausnum í núverandi áætlunum eða hvort það sé þörf á að gera eitthvað enn betur.