157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:08]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hún er fróðleg og klárlega eitthvað sem þarf að koma til skoðunar í þessum málaflokki. Ég vil vekja athygli á því að mér fannst alla vega mjög jákvætt skref að sjá í nýjum sáttmála meiri hlutans í Reykjavík, hins nýja meiri hluta sem er að taka þar við, að þar er endurnýjun og endurskoðun samgöngusáttmálans á dagskrá. Það er auðvitað alveg rétt, eins og hv. þingmaður bendir á, að það eru alls konar tæknilausnir. Þegar við erum að tala um tímalínu — ja, eins og ég kom inn á í ræðu minni, eigum við að segja alla vega til 2040 og ef við erum raunsæ erum við sennilega að horfa töluvert lengra fram á veginn.

Það er alveg rétt að þetta er á fleygiferð. Það eru sjálfkeyrandi bílar. Ég þekki mjög vel manneskju sem tók leigubíl úti í Bandaríkjunum og þar var enginn bílstjóri, engin manneskja í bílnum heldur bara sjálfkeyrandi bíll. Þetta þykir sérstakt þegar fólk gerir þetta í fyrsta skipti. En ferðin var framúrskarandi, engin vandamál. Það má auðvitað segja margt annað, þó að þetta þurfi ekki að vera jafn tæknilegt og sjálfkeyrandi bílar eða framtíðarlegt, ef svo má að orði komast. Bara hlutir eins og hopphjólin sem hafa komið svona dálítið svona organískt, ef ég má leyfa mér að sletta hér, virðulegi forseti, inn í samgönguflóruna og hafa létt verulega á án þess að það væri einhver sérstök stjórnvaldsákvörðun þar á bak við. Þetta er samgöngumáti sem margir eru að nýta í dag og en er ekkert afspyrnuflókinn tæknilega en léttir verulega á. Ég get bara sagt sjálfur, hafandi starfað í miðbænum, þá var hann yfirleitt fljótari að fara á milli á slíku farartæki heldur en t.d. bílnum. Þetta er mjög fín fyrirspurn hjá hv. þingmanni og á að vera eitthvað sem á klárlega að koma inn í endurskoðun sáttmálans.