samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Einmitt það dæmi sem hv. þingmaður tekur varðandi hopphjólin og hvernig þau svona laumuðust inn á markaðinn, ef svo má segja, það var ekkert boðvald frá ríkinu að fara þá leið, er kannski einmitt dæmi um það hvernig tæknin er á fleygiferð og hvernig við sem erum í stjórnmálum þurfum að gefa rými til þess að slík umbreyting, sem við sjáum kannski ekki akkúrat fyrir í dag, geti átt sér stað. Mér finnst áhugavert varðandi sjálfkeyrandi bíla að fylgjast með þessari þróun sem sumir héldu að myndi minnka eða draga úr umferð. En ef við berum saman hvað gerðist þegar Uber kom á markað þá voru einmitt fleiri bílar sem fóru inn í umferðina og það er gert ráð fyrir að mögulega gerist það sama með sjálfkeyrandi bifreiðar og þá eykst umferðarhnúturinn. Þannig að tæknin getur í raun og veru bæði flækt hlutina og lista, ef svo má segja.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Hann kom inn á rosalega mikilvægar framkvæmdir allt frá Miklubraut yfir í Ártúnsbrekkuna, svo eru auðvitað stærri framkvæmdir eins og Sundabraut sem tengjast höfuðborgarsvæðinu. Telur hv. þingmaður að þær tímalínur sem hafa verið kynntar í þessum verkefnum séu raunhæfar, kannski ekki síst miðað við hækkandi kostnað í samhengi við verðbólgu og stöðu fjármála hér heima og í heiminum almennt?