samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég var svona að reyna að særa fram hjá hv. þingmanninum svona einhverjar hugmyndir, einhverjar tillögur að flóttaleið fyrir fólkið vestast í Reykjavík eða á Seltjarnarnesinu. Þó ber að hafa það í huga að það er ekki víst að þeir sem þar búa þurfi endilega að flýja. Það kann auðvitað að vera á hinn veginn; að fólk í Hafnarfirði eða Kópavogi þurfi að færa sig í átt til okkar sem búum hérna í Reykjavík og vestast í borginni.
Í því ljósi langar mig að spyrja hv. þingmann hvaða skoðanir hann hefur á hagkvæmni t.d. framkvæmdar sem er nefnd sem er Fossvogsbrúin. Það er brú sem tengir vissulega og er að fjölga umferðaræðum. Ég tek það fram að auðvitað er það heillandi hugsun að hafa einhverja brú fyrir gangandi, hjólandi og strætisvagna ef það væri með öðru. Ég hef sjálf áhyggjur af því að þarna sé verið að kasta miklu fé fyrir ofboðslega lítinn ávinning. Áætlaður kostnaður við brúna er 8,3 milljarðar en er gott dæmi um hvernig allar áætlanir frá upphafi hafa farið úr böndunum. Ég hef enga ástæðu til að ætla að þessir 8,3 milljarðar, sem er verið að nefna núna, sé endanleg tala á þessari Fossvogsbrú. Upphaflega átti hún að kosta 4 milljarða. 4 milljarðar fyrir göngubrú er ansi ríflegt. Og nú er það komið upp í 8 milljarða og verkið er varla hafið. Það er byrjað að gera einhverja undirbúningsvinnu. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á forgangsröðun sem þessari? Telur hann einboðið að halda áfram við gerð Fossvogsbrúar í þessu ljósi eða væri skynsamlegt kannski að taka upp þá hugmynd að gera hana líka opna fyrir bílum, breyta framkvæmdinni til að nýta það fé betur sem menn hafa ákveðið að setja í þetta?