157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:23]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Við ræðum hér samgönguáætlun. Hér hefur margt verið sagt, margt gott og annað kannski meira óljóst. En ég held að flestir sem lesa þessa áætlun sjái að það er töluverður metnaður í henni og töluverð pólitísk samstaða um að það sé ýmislegt í henni sem við viljum ná fram. En það er annað mál sem bar á góma núna og kom upp í fréttum, held ég bara í gær eða fyrradag, sem mig langaði aðeins að tengja inn í þetta mál og vara við þeim væntingum sem er verið að blása upp í svona áætlunum. Þeir sem voru á þingi síðast — sá sem hér stendur var það ekki en hann tók samt þátt í þeirri umræðu á öðrum vettvangi. Það eru farsældarlögin. Hér var blásið í herlúðra fyrir fimm, sex árum um farsældarlög. Þáverandi barna- og menntamálaráðherra spólaði upp væntingar alveg verulega. Þá starfaði ég í grunnskólunum og mér fannst ég skynja það að þarna væru mörg orð á blaði en kannski eitthvað minna í farvatninu heldur en þau orð sem voru þar á blaði. En samt sem áður, allt sem skrifað var um þetta var eitthvað sem allir gátu gengist inn á og sagt að væri að mörgu leyti jákvætt. Með leyfi frú forseta, þá segir í 1. gr. laganna að markmiðið sé að stuðla að farsæld barna og tryggja að börn og foreldrar hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Þetta hljómar vel og þetta skapar væntingar hjá fólki, sérstaklega fólki sem kannski stendur höllum fæti með einhverjum hætti í lífinu af því að börnin okkar eru ekki á þeim stað sem foreldrarnir myndu vilja. Það eru einhverjir erfiðleikar sem eru flóknir.

Ég nefni þetta hér vegna þess að það sama á við að mörgu leyti um þessa samgönguáætlun. Svo er innviðafélagið, það kemur ofan á áætlunina og er nátengt henni auðvitað. Það er verið að flakka með verkefni þar á milli, hvaða verkefni eigi heima í innviðafélaginu og hvaða verkefni eigi heima í samgönguáætlun. Þegar þingmenn meiri hlutans ræddu það hér í pontu, sérstaklega til að byrja með, þá kom í ljós að þeir voru ekki einu sinni alveg með það á hreinu hver munurinn á þessu væri, samgönguáætlun og innviðafélaginu. Er það nema von að almenningur átti sig ekki á þessu? Er það nema von að þegar þú heyrir kannski að það sé von á einhverju í þínu sveitarfélagi eða á þínu svæði þá skapi það væntingar?

Íbúar á Austfjörðum voru með réttmætar væntingar til þess að þeir fengju göng og að þau væru í forgangi þar en það var slegið á þær væntingar með nýrri ríkisstjórn. Ég er að draga þetta fram til að dempa væntingar. Ég held að við stjórnmálamenn þurfum að huga að því að væntingarnar séu raunsæjar og raunhæfar þannig að traust almennings á þinginu dofni ekki. Það verði ekki þannig að við spólum upp væntingar í hverri áætluninni á fætur annarri og síðan verði framkvæmdirnar og efndirnar einhvern veginn miklu minni. Því miður er það þannig með farsældarlögin að þau hafa ekki náð fram að ganga og fá falleinkunn hjá Ríkisendurskoðun. Við erum að tala um verkefni sem hefur fengið fjölda ára, fimm, sex ár í innleiðingu, milljarða í kostnað og þúsundir klukkustunda hjá starfsmönnum víða um land.

Ég dreg þetta hér fram vegna þess að ég vil að við séum raunsæ og spólum aðeins niður væntingar í kringum samgönguáætlunina. Auðvitað viljum við gera sem mest en það verður ekki gert með því að skattleggja borgarana í drep. Það held ég að sé alveg ljóst. Við verðum einhvern veginn að tempra væntingar þannig að traust og trú til þingsins verði meiri þannig að við séum ekki að tala bara um eitthvað sem ekki verður. Það eru vinnubrögð, held ég, sem ekkert af okkur á þinginu er stolt af. Vonandi mun sem mest af þessari samgönguáætlun ganga eftir (Forseti hringir.) en þá þurfa málin að vera almennilega unnin og stjórnarmeirihlutinn þarf að vita hvað á heima í innviðafélagi og hvað á heima í samgönguáætlun. (Forseti hringir.) Það er grunnpunktur sem við þurfum að vinna eftir.