samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir þetta prýðiserindi. Þegar þessi samgönguáætlun er skoðuð þá er hún kannski akkúrat það sem hv. þingmaður var að tala um. Hún er gríðarlega afturhlaðin og ekki kannski síst þegar kemur til að mynda að Norðausturkjördæmi. Hv. þingmaður nefndi nú réttmætar væntingar sem Austurland hafði haft. Mér þykir þetta áhugaverð nálgun í umræðunni af því að væntingastjórnun er eitthvað sem hefur aðeins verið að þvælast fyrir þessari ríkisstjórn.
Það vantar ekki að það hafi verið notuð mjög falleg orð og flottir frasar um allt það sem stendur til að gera, eins og að ræsa vélarnar. Ég held að allir séu búnir að heyra alla þessa helstu frasa. En þetta er tvíeggjað sverð því að að gefa út svona miklar væntingar, reyna að haka í sem flest box þannig að sem flestir séu ánægðir, er ekki það sama og að eitthvað af þessu sé að ganga eftir og hvað þá í þeirri tímaröð sem þarna er verið að lofa. Það get ég auðveldlega rökstutt, hv. þingmaður, því að mikið af þeim verkefnum sem eru talin upp í þessari áætlun eru loforð til handa komandi ríkisstjórnum.
Nú eru völd sitjandi ríkisstjórnar hverju sinni mikil en þau ná hins vegar ekki yfir komandi ríkisstjórnir, þannig að hér er verið að setja alls konar á blað sem öðrum er svo ætlað að uppfylla. Þess vegna er kannski þessi samlíking við farsældarlögin áhugaverð.
Svo er annað. Ég nota kannski síðustu sekúndurnar í að spyrja hv. þingmann um þá væntingastjórnun er varðar ítrekaðar yfirlýsingar um að þessi áætlun sé fullfjármögnuð. Hvað finnst hv. þingmanni um það?