157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:31]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni Þorgrími Sigmundssyni fyrir prýðisandsvar. Fullfjármögnuð samgönguáætlun? Ég held að flestir sem í þessum sal sitja og almenningur hafi áttað sig á því að þarna var eitthvað ekki, eins og menn vildu meina, þannig í pottinn búið. Hún er ekki fullfjármögnuð frekar en sú verðmætasköpun sem aldrei kom. Menn sjá það bara í orðræðunni í kringum samgönguáætlun og innviðafélagið. Menn eru þarna að kasta á milli milljörðum til og frá. Ef þetta fer hingað þá losna þarna milljarðar og þess vegna er þetta fullfjármagnað. Í einhverju venjulegu fyrirtæki, held ég, þá færu menn bara inn í fyrirtækið og myndu gera skurk í því að taka tölvur og gera þær upptækar til að skoða hvernig bókhaldið væri, hvort þetta væru bókhaldstrixin hjá fyrirtækinu. Þarna er verið að keyra upp einhverja væntingar eins og þessari ríkisstjórn er einkar lagið.

Við höfum heyrt ýmsa frasa og verið með ótal blaðamannafundi þar sem tilkynnt er að eitthvað sé að fara í gang og menn vita náttúrlega um hagræðingartillögurnar þar sem voru vel á annað þúsund tillögur og megnið af þeim endaði svo í einhvers konar hakkavél. Núna sjáum við bara nýja skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem stendur svart á hvítu, með leyfi frú forseta: „Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu.“ Að fá þennan dóm ofan í einhverjar háar væntingar skapar vantraust. Það er síst það sem við þurfum á að halda hér á milli þings og þjóðar, að þjóðin treysti ekki þinginu. Þess vegna verðum við að gæta okkar á því sem við segjum og að skapa ekki óhóflegar væntingar.