samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir annað gott andsvar. Ég held að þó að ég myndi leita töluvert lengi þá fyndi ég ekki það sem hv. þingmaður hefur sjálfur verið að leita að því að ég held að þetta standi ekki neins staðar í þessu plaggi. Ég held að ef við hugsum bara um greiðsluvilja almennings til svona framkvæmda, ef tékkinn er bara opinn í annan endann, að þú þurfir að greiða í raun út í hið óendanlega, þá held ég að greiðsluviljinn minnki. Ég held að það sé bara mannlegt fyrir okkur öll. Þess vegna þarf að vera einhver endapunktur þar sem mannvirkið kemst í eigu ríkisins þannig að menn þurfi ekki að greiða lengur fyrir mannvirkið. Þetta lýsir því bara hvernig vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar, hvernig þeir einhvern veginn fara af stað, sjá ekki alla þessa lausu enda (Forseti hringir.) sem þyrfti að hnýta til þess að málin séu trúverðugri.