157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:39]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir gott andsvar. Þarna held ég að hæstv. ráðherra hafi stigið í pytt eins og margir forverar hans, að lofa einhverju sem verður erfitt eða ekki hægt að framkvæma. Við sjáum það í öllu þessu, eða í ofboðslega mörgum málum sem tengjast pólitík, að fyrirsjáanleikinn fyrir fólkið í landinu, sem við eigum að þjóna sem fulltrúar þess, varðandi það sem við segjum hér í þinginu, og þá ríkisstjórnin meira núna en stjórnarandstaðan, ég reyni að vera aðhald, að það hefur á köflum verið allt of lítið að marka það. Við getum bara ímyndað okkur með Fjarðarheiðargöngin, og þá á ég við á Austurlandi, að menn hafi kannski byrjað á einhvers konar framkvæmdum vegna þess að það var búið að lofa einhverju sem síðan aldrei varð. Hvað með Fljótagöngin? Verða þau að veruleika? Uppfylla þau skilyrði til að komast inn í innviðafélagið? Getur innviðafélagið tekið til starfa á réttum tíma? Þetta eru bara spurningar sem mér finnst ekki hafa verið svarað hér í þinginu. Ég veit að fyrir þá sem eru að horfa núna hljómar þetta allt flókið og þvælið, en það er það kannski ekkert sérstaklega. Menn þurfa bara að geta staðið við það sem þeir segja og menn verða þá dregnir til ábyrgðar í kosningum, vonandi, ef menn geta ekki staðið við það sem þeir segja. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur stjórnmálamenn að keyra ekki upp væntingar og segja það sem við getum efnt, ekkert meira en það. Segja það sem við getum efnt og allt annað verður bónus. Þannig held ég að almenningur vilji að þingið starfi en ekki í einhverjum loftköstulum og umbúðum.