samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisgott svar. Í mínu seinna andsvari langar mig aðeins að biðja þingmanninn um að setja sig í spor landsbyggðarinnar, vegna þess að ég veit að hann er þingmaður höfuðborgarsvæðisins, varðandi farnetsmálin. Þeir sem fara um landið og þeir sem búa úti á landi við útskiptingu á 2G, 3G og innkomu 4G, 5G búa við verri tengingar. Það hefur valdið áhyggjum einstaklinga af því að ná ekki í 112 þegar á þarf að halda. Sá vandi er ekki hér á höfuðborgarsvæðinu. Hér er þjónustan allt um kring. Þannig að mig langar að spyrja þingmanninn hvort honum finnist það ásættanleg svör hæstv. innviðaráðherra að þessu verði kippt í liðinn á kjörtímabilinu.