157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:43]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Aftur gott andsvar hjá hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur. Varðandi rafræn tengsl við umheiminn. Í dag er þetta orðið þannig að við treystum á það að geta verið í sambandi meira og minna alls staðar. Það þekki ég nú sjálfur, þar sem ég keyri stundum vestur á Snæfellsnes, norðanvert nesið, að á köflum þar, á Heydalsvegi, er ekkert samband. Ég ætla ekki að segja að ég fyllist einhverjum óhug en það er auðvitað óþægilegt til þess að hugsa að ef eitthvað kæmi fyrir þar þá gæti maður ekki hringt í 112. Sjálfur var ég hætt kominn hér úti á sjó en gat hringt í 112. Ég held að það hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum hefði ég ekki getað gert það. Þannig að þessi svör, að það verði á kjörtímabilinu, beri þess merki að ráðherrann hafi ekki hugsað þetta til enda og svari með þessum hætti til að kaupa sér aukinn tíma. En ég held að fólkið sem býr við þær aðstæður að hafa ótryggt samband eigi rétt á skýrari svörum og heiðarlegum svörum.