samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir mjög gott andsvar. Í minni fyrstu ræðu í þessu máli vakti ég einmitt máls á því að þarna væri verið að taka ákveðin völd frá þinginu og þá um leið frá þjóðinni og að mínu mati er það óásættanlegt. Það er þannig ef maður er í einhvers konar kosningabaráttu og er að reyna að lofa einhverju að sjálfur er ég mjög tregur til að lofa hlutum nema ég sé alveg viss um að ég geti staðið við þá. Það er freistnivandi mikill að segja bara: Já, ég mun — ég myndi alla vega lofa með fyrirvörum. En við erum þing, við erum kjörnir fulltrúar, við erum fulltrúar fólksins í landinu og mér finnst í fljótu bragði hugmynd hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur vera góð, að þingið velji á endanum, vegna þess einfaldlega að þá er hægt að kjósa menn í burtu á fjögurra ára fresti. Það er síður hægt með innviðafélag og starfsmenn þess eða embættismenn þess, hverjir sem eru að vinna þar. Þetta þekkir maður bara með embættismenn í hinum ýmsu stofnunum. Það er hægt að kjósa pólitíkina í burtu en embættismennirnir eru þaulsetnir. Þannig að ég þetta var góð spurning, góð pæling, og mér heyrist að við hv. þingmaður séum algjörlega sammála um það sem þarf að gera.