157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:51]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér samgönguáætlun, eina stærstu fjárfestingaráætlun hins opinbera. Samgöngur snúast auðvitað fyrst og fremst um lífsgæði fólks, um atvinnulífið, um byggðaþróun og um öryggi. Þetta er auðvitað risastórt öryggismál. Samgöngur snúast líka um það hvernig við ráðstöfum skattfé almennings og hvernig við tryggjum lýðræðislegt aðhald með stórum framkvæmdum. Það eru sem sagt margir fletir á því að ræða samgönguáætlun og mikilvægt að við gerum það hér fyrir opnum dyrum við umræðu á Alþingi og það er ánægjulegt hversu margir hv. þingmenn hafa tekið þátt í umræðunni og hyggjast gera það áfram.

Virðulegi forseti. Hér hafa aðrir hv. þingmenn viðrað af því áhyggjur að á meðan Alþingi samþykkir fjárveitingar, á meðan við ábyrgjumst lán og hv. þingmenn bera að lokum ábyrgð á fjárveitingum til þessa verkefnis, borgarlínu, gagnvart skattgreiðendum, er verkefnið að verulegu leyti, ef ekki öllu, knúið áfram í gegnum félag sem starfar án þess að til staðar sé eiginlegt, a.m.k. ekki nægjanlegt, hefðbundið aðhald stjórnmálanna. Og ég deili þeim áhyggjum sem hv. þingmenn hafa viðrað vegna þessa. Ég nefndi í fyrstu ræðu minni í þessu máli eitt lítið dæmi sem mér þótti svo mikil furða. Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, þar sem í Reykjavík var m.a. mikið tekist á um þetta verkefni um borgarlínu, var ekki fyrr búið að tilkynna um niðurstöður kosninganna en við sáum að það var verið að auglýsa útboð vegna einhverra stoppistöðva í þessu borgarlínuverkefni. Það bara heldur áfram á sjálfstýringu, algerlega án tillits til afstöðu kjörinna fulltrúa.

Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur lagt fram breytingartillögu við samgönguáætlun sem liggur hér frammi og ég hvet fólk til að kynna sér hana en þar er lagt til að uppbygging borgarlínu, einstakir verkefnafasar hennar, önnur verkefni Betri samgangna ohf., samgöngusáttmálinn sjálfur og fjármögnun hans verði reglulega kynnt fyrir umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og að aðkoma Alþingis að framkvæmdunum verði tryggð. Þegar maður les þessa breytingartillögu og veltir þessu í raun fyrir sér þá ætti það að vera sjálfsagt og ég bind miklar vonir við að við getum sameinast um þessa góðu tillögu.

Virðulegi forseti. Þegar um er að ræða verkefni sem kostar hundruð milljarða króna, verkefni sem hefur áhrif á skipulag heillar höfuðborgar og sem ríkið fjármagnar að stórum hluta, þá á Alþingi ekki að vera áhorfandi að því. Það er í raun fráleitt fyrirkomulag. Við þingmenn, löggjafinn, eigum að taka virkan þátt í því ferli. Við þurfum í því samhengi að spyrja okkur þeirrar grundvallarspurningar: Hver ber ábyrgð? Ef kostnaður fer fram úr áætlunum, hver ber ábyrgð? Ef forsendur verkefnisins standast ekki, hver ber ábyrgð? Ef framkvæmdir tefjast, hver ber ábyrgð?

Virðulegi forseti. Það gengur ekki upp í mínum huga að verkefni af þessari stærðargráðu sé í höndum félags sem getur tekið lán, ráðist í framkvæmdir og þróað verkefnið áfram án þess að Alþingi fái reglulega og formlega umfjöllun um stöðu mála. Í því felst ekkert vantraust eins og svo oft hvarflar að fólki þegar maður ræðir aukið aðhald og eftirlit. Staðreyndin er bara sú að þeim mun meiri fjármunir sem eru undir, og þeir eru mjög miklir í þessu verkefni, þeim mun mikilvægara er að lýðræðislegt aðhald og auðvitað ábyrgð sé til staðar.

Virðulegi forseti. Ég fór yfir það hér í fyrstu ræðu minni hvernig fráfarandi og langvarandi vinstri meiri hluti í Reykjavík hafði beinlínis fylgt tafastefnu í samgöngumálum áratugum saman. Stórar umferðaræðar voru þrengdar, uppbygging tafðist ítrekað og umferðarteppur urðu verri og verri. Á sama tíma var fjármunum varið í verkefni sem skiluðu ekki þeim árangri sem var lofað. Ég tók í fyrstu ræðu minni lítið dæmi eins og um beygjuvasa á Höfða og stórt en einfalt dæmi um ljósastýringu í borginni. Ég fór sömuleiðis yfir það að af því að meiri hlutinn var eins og hann var og við hér höfðum ekki ítök til að hafa áhrif á þessar framkvæmdir í borgarkerfinu, þá lagði ég ítrekað fram sem þingmaður Reykvíkinga fyrirspurnir varðandi framkvæmd samgöngusáttmálans hér á Alþingi. Því miður uppskar ég ekki erindi sem erfiði. Ég spurði m.a. um ljósastýringar og um tilteknar framkvæmdir sem höfðu verið settar í framkvæmd samkvæmt samgöngusáttmálanum en við sem búum í borginni og ferðumst hér um sjáum það með eigin augum að þeim áætlunum og þeim forgangslista var ekki framfylgt.

Það hefur viljandi verið ráðist í tafaframkvæmdir en á sama tíma hafa mikilvæg verkefni tafist um árabil með tilheyrandi kostnaði fyrir almenning og atvinnulíf. Samfélagið allt tapar á þessu, þetta er gríðarlegur kostnaður, á sama tíma og mengun eykst og umferðaröryggi versnar. Mínus og mínus og mínus sem verður samanlagt bara mínus. Slíkt risaviðfangsefni, sem hefur gríðarleg áhrif á daglegt líf fólks, verður að geta þolað gagnrýna umræðu, þolað spurningar, þolað eftirlit. Og þolað það og unað því að Alþingi taki það til umræðu – að við ræðum það hér og fylgjumst með því hér, við þjóðkjörnir fulltrúar.

Við eigum auðvitað að geta tekist á um þessi efni, samfélagið og íbúar hér, en líka þeir sem þurfa að nota þjónustu höfuðborgarinnar, þetta er jú höfuðborg allra landsmanna. Það er þess vegna ekki gott þegar umræða um borgarlínu hverfist um það hvort menn séu með eða á móti verkefninu. Verkefnið er reyndar að mínu mati mjög óljóst og ég fór líka yfir það í fyrstu ræðu minni. En raunverulegar spurningar og viðfangsefni varðandi kostnað, forsendur, framkvæmdaáætlanir, forgangsröðun og árangursmælingar fá miklu minna vægi í þessari umræðu. Hver verða áhrifin á umferð? Hver verða áhrifin á atvinnusvæði? Hvernig verða áhrifin á rekstur sveitarfélaga? Hvernig verður tryggt að kostnaður fari ekki úr böndunum? Að áætlanir standist? Og hvernig verður tryggt að skattgreiðendur fái upplýsingar um stöðu verkefnisins á hverjum tíma? Þetta eru eðlilegar spurningar og viðfangsefni sem eiga heima hér á Alþingi.

Virðulegi forseti. Samgöngusáttmálinn og útfærsla hans er sannarlega ekki einkamál sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ríkið er stór þátttakandi. Ríkið leggur fram fjármuni og tekur á sig skuldbindingar og handhafar ríkisvaldsins og löggjafarvaldsins sem veita fjármunina eru ábyrgir gagnvart kjósendum. Það getur þess vegna ekki verið eðlilegt að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar fái aðeins að fylgjast með úr fjarlægð. Það þarf að vera regluleg skýrslugjöf. Það þarf að vera regluleg umræða. Það þarf að vera reglulegt eftirlit. Alþingi þarf að fá upplýsingar áður en stórar ákvarðanir eru teknar, ekki eftir á. Það er í rauninni lágmarkskrafa og ég segi það aftur að við ættum að geta sammælst um það.

Virðulegi forseti. Ég tel að þessi breytingartillaga hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sé hófleg, hún sé skynsamleg. Hún felur ekki í sér að framkvæmdir séu stöðvaðar. Í rauninni hafa framkvæmdir tafist allt of mikið nú þegar. Hún felur því ekki í sér tafir. Hún felur ekki í sér að það sé verið að hrifsa verkefni af þeim sem hafa verið settir til að vinna að framgangi þess. Þessi tillaga felur einfaldlega í sér að þingmenn geti sinnt þeim störfum sem þeim hefur verið falið að sinna: Hafa eftirlit með stórum opinberum framkvæmdum, fylgjast með ráðstöfun skattfjár, tryggja gagnsæi, tryggja ábyrgð og tryggja það að þegar ráðist er í verkefni af þessari stærðargráðu sé Alþingi upplýst um framgang þeirra. Þetta er ekki bara umræða um borgarlínu, strætó eða akreinar, lest, flugbraut eða hvað sem þetta verkefni verður að endingu. Við erum að ræða um fyrirkomulag lýðræðis, hvernig opinberu fé er varið. Við erum að ræða hvort kjörnir fulltrúar þjóðarinnar hafi raunverulega aðkomu að einni stærstu samgöngufjárfestingu Íslands.

Í mínum huga er þetta skýrt, virðulegi forseti. Alþingi á að hafa formlega aðkomu að þessum framkvæmdum, á að vera upplýst vel og nægjanlega og Alþingi á að hafa raunverulegt eftirlit með verkefni sem skattgreiðendur um allt land standa undir.