157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:02]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir virkilega góða ræðu. Hún kom inn á mikið af lykilpunktum og það er svo gott dæmi að fara yfir hvernig Betri samgöngur eða borgarlínuverkefnið er í samanburði við það þegar við erum að stofna þetta nýja innviðafélag. Það sem mér þótti mjög sláandi var það sem hv. þingmaður benti á, að bara degi eftir kosningar er einhver sjálfstýring í gangi hjá þessu félagi þar sem þau eru að fara af stað með útboð vitandi það að meiri hlutinn sem er að taka við sagðist vilja endurskoða samninginn.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er þetta ekki eiginlega bara, ég veit ekki hvort maður megi segja ósvífið, en væri ekki eðlilegt að kjörnir fulltrúar kæmu alla vega á einn fund með Betri samgöngum áður en þetta væri gert?