157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:03]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hún nefndi sérstaklega þessa sögu sem ég er búin að fara hér ítrekað yfir varðandi þessar biðstöðvar sem voru boðnar út degi eða nokkrum klukkutímum eftir að niðurstöður kosninganna voru ljósar og hv. þingmaður spyr hvort þetta sé ekki ósvífið. Ja, hún sagði það. Þarna erum við ekki bara að ræða um það, af því að megininntak ræðu minnar var auðvitað aðkoma Alþingis og ég sagði að þetta væri ekki einkamál sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, að þarna virðist þetta líka vera þeim óviðkomandi, kjörnum fulltrúum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það er bara vaðið áfram, verkefnið er á sjálfstýringu og það virðist vera algjörlega aftengt stjórnmálunum. Ég bara deili þeim áhyggjum hv. þingmanna sem hafa viðrað þær hér í þessum þingsal. Ég hef af því verulegar áhyggjur og ég held að við ættum að samþykkja þessa breytingartillögu.