157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:07]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu eins og venja er hjá henni. Mig langar að ræða aðeins við hana að mér fannst ekki gott að heyra hérna í fyrri andsvörum á milli hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur og þingmannsins Diljár Mistar Einarsdóttur, ef ég hef heyrt rétt, að Betri samgöngur séu á svona hálfgerðri sjálfstýringu. Ég er þeirrar skoðunar að að sjálfsögðu eigum við þá að reyna að koma í veg fyrir að óstofnuðu innviðafélagi verði hagað þannig að það verði einnig á hálfgerðri sjálfstýringu.

Mig langar að spyrja þingmanninn hvort ég hafi heyrt rétt varðandi Betri samgöngur. Síðan er það hitt, þar sem ég hef örfáar sekúndur eftir, að nú er verið að setja mikið púður í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu en á sama tíma, samkvæmt samgönguáætlun, er Vegagerðin að skera niður til almenningssamgangna á landsbyggðinni: Finnst þingmanninum þetta forsvaranlegt?