samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður skildi þær áhyggjur mínar, sem hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir deilir, að það væri ekki nægt stjórnmálalegt aðhald með þessu verkefni. Við tókum þetta litla dæmi sem við ræddum varðandi þetta útboð sem var bara nokkrum klukkustundum eða dögum eftir að niðurstöður sveitarstjórnarkosninga voru ljósar, sem þó snerust að miklu leyti um nákvæmlega þetta tiltekna verkefni og hvort það ætti að endurskoða. Mér finnst það vera ágætissönnun þess hvar þetta mál er statt og hvernig fyrirkomulagið er og þess vegna finnst mér þessi breytingartillaga hv. þm. Guðlaugs Þórs alveg gríðarlega mikilvæg og ég vona að við getum sammælst um hana. Hv. þingmaður nefndi líka innviðafélagið og það er meðal þess sem við eigum eftir að ræða mjög ítarlega hér og eru margir fletir á því sömuleiðis. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns varðandi það. Mér sýnist ég ekki hafa tíma fyrir síðari spurningu hv. þingmanns en ég kem þá bara að henni í síðara svari mínu.