157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:09]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og það er gott að heyra að ég hafi skilið þetta rétt. Varðandi almenningssamgöngurnar á landsbyggðinni langar mig bara, af því að ég hef mjög lítinn tíma, að lesa fyrir þingmanninn það sem kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í umsögnum varðandi fyrirhugaðar skerðingar á almenningssamgöngum á landsbyggðinni enda munu þær skerðingar að líkindum hafa það í för með sér að þjónusta dragist saman og ferðum fækki.“

Fyrir mér er þetta fullkomlega óásættanlegt á meðan verið er að gefa í hvað varðar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem búa á landsbyggðinni eru líka borgarar í þessu landi. Hér finnst mér halla verulega á landsbyggðina og mig langar að heyra ofan í þingmanninn hvort hún deili þessum áhyggjum með mér.