samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er sérstaklega skemmtilegt þegar þingmenn frá höfuðborginni og síðan á landsbyggðinni ræða þessi mál sín á milli. Við erum a.m.k. í þetta sinn ekki að ræða Spöngina í Grafarvogi sérstaklega. Við erum ekki enn þá búin að koma því í verk að heimsækja hana. En varðandi fjárveitingu til almenningssamgangna á landsbyggðinni langar mig bara að segja, af því að ég hef ekki langan tíma hér að þessu sinni, að það er allt á sömu bókina lært með þessa ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn stendur ekki með landsbyggðinni. Ég veit ekki hvort það hafi hreinlega verið tekin meðvituð ákvörðun um að setja allan fókus á og athygli og fjármuni í hugðarefni og það sem stendur íbúum höfuðborgarsvæðisins næst og hæst af því að þar búa auðvitað flestir. En maður finnur það af ferðalögum um landið, ég ferðaðist nú talsvert um landið í aðdraganda síðustu sveitarstjórnarkosninga, að það er veruleg óánægja með þessa ríkisstjórn á landsbyggðinni.