157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:13]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög gott andsvar. Við eigum örugglega eftir að ræða innviðafélagið talsvert betur hér í þingsal enda ekki vanþörf á varðandi það hvernig við tryggjum þjóðkjörnum fulltrúum beina aðkomu. Hér fjallaði ég um breytingartillögu hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem gengur einmitt út á það varðandi þetta tiltekna verkefni. Ef til vill endurspeglar þetta svona bjagaðan hugsunarhátt að mínu mati sem er gegnumgangandi, að það sé nánast gæðastimpill að við fjarlægjum hluti, ef við búum til einhverja armslengd frá stjórnmálunum. Þá finnst manni öllu snúið á hvolf þegar þjóðkjörnir fulltrúar sem sitja hér á Alþingi og eru einmitt kosnir til að hafa eftirlit, m.a. með stórum útgjaldaliðum — það sé síðan verið að búa til einhvers konar umgjörð utan um þau verkefni þannig að stjórnmálamenn geti hreinlega ekki einu sinni haft eftirlit eða fengið upplýsingar um þau verkefni. Við eigum að bæta úr þessu hér á Alþingi.