samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það svar sem ég fékk hugnaðist mér ákaflega vel því ég held að ég og hv. þingmaður séum á mjög svipuðum slóðum hvað varðar mat okkar á þessu. Mig langar að nota seinni ferðina í að spyrja út í annað, þ.e. þetta innviðafélag eins og það er boðað með tilheyrandi gjaldheimtu sem er í raun og veru skattahækkun. Hvar metur hv. þingmaður að þolmörkin séu? Hvenær lýkur greiðsluvilja almennings? Nú erum við búin að setja á, gerðum það í desember, alveg gríðarlega hækkun vörugjalda og við fórum í aukaskattlagningu sem var kölluð kílómetragjald en átti auðvitað bara að heita kílómetraskattur. Hvenær metur hv. þingmaður það sem svo að greiðsluvilja þjóðarinnar sé hreinlega bara lokið, hann sé þrotinn?