157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:16]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og hann beinir sjónum að þolmörkum varðandi greiðsluvilja almennings. Ja, ég held að það sé löngu komið vel yfir þau þolmörk. En það er ótrúlegt til þess að hugsa að það var auðvitað almenningur sem kaus yfir sig — kannski ekki þessa ríkisstjórn, auðvitað er það ekki svo að almenningur sjái fyrir sér hvernig ríkisstjórn er mynduð. Hana mynda flokkar, sérstaklega tveir flokkar sem lofuðu almenningi því, Viðreisn fór þar mjög hátt í aðdraganda síðustu alþingiskosninga, að skattar og álögur yrðu ekki hækkaðir á svokallað venjulegt fólk, sem hefur nú ekki verið skilgreint nánar, og jafnvel talað um lítil og meðalstór fyrirtæki. Raunin hefur nú aldeilis verið önnur. Við eigum eftir að ræða þetta betur varðandi auðvitað innviðafélagið í tengslum við umræðuna um það. En þetta er auðvitað gömul saga og ný með vinstri stjórnir, við erum auðvitað, eins og þekkt er, ein skattpíndasta þjóð heims. Ég held að það sé löngu komið að þolmörkum hjá almenningi en manni virðist sem þessi ríkisstjórn sé enn þá vera með glýju í augunum yfir því að seilast dýpra í vasa almennings.