samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir prýðilega yfirferð. Það sem ég tók út úr þessari ræðu var raunar hið sama og ég tók út úr ræðu hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur er varðar þessa væntingastjórnun sem er ekki einn af styrkleikum þessarar ríkisstjórnar að mati þess sem hér stendur, því að ekki vantar stóru orðin og gífuryrðin og blaðamannafundina um allt sem er að fara að gerast, sennilega fljótlega, hugsanlega þó ekki fyrr en með næstu ríkisstjórn eða þarnæstu. Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir nefndi Fljótagöngin og það er prýðilegt dæmi um svona væntingastjórnun. Þar hefur ráðherra lofað ítrekað að það verkefni sé að fara af stað og fari af stað á vegum innviðafélagsins sem svokallað A3-félag. En það er óheimilt, þetta loforð. Á meðan ekki er búið að búa til nægjanlegt eignasafn inni í boðuðu innviðafélagi er sú framkvæmd óheimil út frá 50% reglunni. Ég, hv. þingmaður, átta mig ekki á því hvernig á að framkvæma þetta, a.m.k. ekki í þeirri röð sem búið er að boða það því að þá geta Fljótagöng aldrei fallið undir A3-félög. Þess vegna spyr ég, og þetta er bara óvenjueinföld spurning hvað a.m.k. framsetninguna á spurningunni varðar: Er svona loforð trúverðugt að mati hv. þingmanns? Er þetta eðlileg væntingastjórnun í þessu tilfelli, t.d. gagnvart íbúunum á þessu svæði?