samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Trúverðugleikinn er auðvitað enginn. Það er enginn trúverðugleiki í þessari samgönguáætlun. Hér er búið að brussast fram, eins og ég hef sagt áður, og tala um fullfjármagnaða samgönguáætlun, sem er bara rangt. Hér er verið að blekkja þjóðina. Þessi samgönguáætlun er ekki fullfjármögnuð. Hún er fjármögnuð á þessu kjörtímabili, það sem eftir lifir, og þetta kjörtímabil fer nú að verða hálfnað. Síðan hefur ríkisstjórnin tekið þá ákvörðun að ýta eiginlega öllum verkefnum inn á önnur kjörtímabil heldur en það kjörtímabil sem þau eru að starfa á. Og þá svara ég spurningunni sem hv. þingmaður spurði mig að: Nei, þetta er enginn trúverðugleiki. Hér er verið að ýta verkefnum sem þau treysta sér ekki í og ráða ekki við sjálf yfir á framtíðarríkisstjórnir og ég ætla að vona að það verði einhver önnur ríkisstjórn en þessi sem hér situr.