samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Hún fór vítt og breitt í sínu innleggi, fór m.a. svona, ja, um landið. Þingmaðurinn kom inn á hversu afturhlaðin þessi áætlun er. Það er augljóslega ekki verið að ræsa neinar vélar, það er augljóslega ekki verið að byrja að bora og áætlunin er augljóslega ekki fullfjármögnuð. Ég held að það sé allt nokkuð ljóst. Yfirlýsingagleðin hefur verið við völd og væntingar hafa verið skapaðar víða. Væntingar höfðu þegar verið skapaðar eins og t.d. varðandi Fjarðarheiðargöngin, þeim hafði verið lofað en nú er búið að svíkja það og önnur göng hafa verið sett í forgang, Fljótagöng, sem eru líka mikilvæg. Ég heyrði að þingmaðurinn svaraði áðan að hún teldi að það yrði ekki byrjað að bora á næsta ári, eða teldi það ólíklegt, eins og hæstv. ráðherra hefur ítrekað boðað. Ég er sammála henni í því. Ég tel að það sé mjög ólíklegt að það verði byrjað að bora miðað við að það er harla ólíklegt að það verði hægt að fella þessa framkvæmd undir innviðafélagið.
Mig langaði að spyrja þingmanninn varðandi sjóvarnir, af því hún kom líka inn á það. Það er gríðarlegt ákall úti um allt land um að setja meiri kraft og pening í að efla sjóvarnir. Fram kemur í nefndaráliti meiri hlutans, með leyfi forseta:
„Meiri hlutinn telur fullt tilefni til að skoða lagaumgjörð og fyrirkomulag þessara mála með það að markmiði að forvarnir gegn sjávarflóðum og landbroti verði skilvirkari.“
Ég er sammála þessari framsetningu, að lagaumgjörðin verði endurskoðuð. Mig langaði að heyra ofan í þingmanninn hvort hún hefði skoðun á því. Þetta er á bls. 35 í nefndaráliti meiri hlutans.