157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:41]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir svörin. Áður en ég fer inn í seinni spurninguna þá langar mig að spyrja þingmanninn varðandi sjóvarnirnar áfram. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hún telji það mögulega koma til greina að fella sjóvarnir undir ofanflóðasjóð, maður hefur heyrt hugmyndir um möguleikann á að gera það. Síðan, ég á örstuttan tíma eftir, varðandi farnetsmálin, útfösun á 2G og 3G og yfir í 4G og 5G. Það hefur komið á daginn að tengingarnar eru miklu verri, sérstaklega úti á landi. Það eru holur í kerfinu og hæstv. innviðaráðherra hefur svarað því til að þessu eigi að kippa í liðinn á kjörtímabilinu, sem er væntanlega árið 2028 (Forseti hringir.) nema guð lofi að það verði fyrr. Telur þingmaðurinn þessi svör ráðherrans ásættanleg, sérstaklega með tilliti til þess að íbúar á landsbyggðinni og ferðamenn búa við óöryggi og ná stundum kannski ekki í 112?