157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:46]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður nefnir hér þessa frasapólitík ríkisstjórnarinnar, fyrirsagnapólitíkina eins og ég kalla það. Þetta er sýndarpólitík og ég tel að landsmenn allir séu nú smátt og smátt farnir að sjá raunveruleikann og raunveruleikinn er sá að keisarinn er ekki í neinum fötum. Það er staðan. Það er staðreynd. Í dag birtust tölur um stöðu opinberra fjármála þar sem afkoma hins opinbera er neikvæð um tæpa 24 milljarða á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það segir okkur að útgjöld eru að hækka hraðar en tekjur. Það setur þessa umræðu okkar í skýrt samhengi. Það segir okkur að ríkisstjórnin ræður ekki við það verkefni sem hún var kosin til. Hún var ekki kosin til að hlaupa hér inn í Evrópusambandið en hún er að nota það sem skálkaskjól fyrir eigin vangetu. Ríkisstjórnin getur ekki talað eins og að allt sé fullfjármagnað þegar á sama tíma sýna ríkisfjármálin að svigrúmið er takmarkað. Það er nánast ekki neitt og óvissan er mikil. Það er ekki nóg að ræsa slagorðin, það þarf að ræsa framkvæmdirnar. Það er ekki nóg að ræsa orðháka þessa lands eins og Þórð Snæ Júlíusson og fleiri. Ég ætla að hvetja þessa ríkisstjórn til að hætta nú þessari sýndarmennsku sinni og reyna að láta verk sín tala, þessi fáu verk sem hún treystir sér til að fara í.