samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Þegar maður les fyrstu blaðsíðurnar í þessari tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030 sér maður metnaðarfull markmið og það eru stór orð notuð, t.d. hvað varðar framtíðarsýn og meginmarkmið samgönguáætlunar. En þegar maður les aðgerðaáætlunina og markmiðin þá er mjög leiðandi stef að það eigi að óska eftir skýrslum, skipa nefndir og vega og meta alls konar hluti en það eru engar beinharðar aðgerðir eða verið að ræsa neinar vélar.
Það sem grípur augað mitt sérstaklega í 5. kafla þessarar þingsályktunartillögu um markmið er a-liður þar sem tekið er fram að það eigi að vinna markvisst að því að leggja bundið slitlag á tengivegi. Ekki verður séð af sundurliðun á nýframkvæmdum að það eigi að ráðast jafn markvisst í þetta og lýst er yfir að eigi að vera hluti af meginmarkmiðum þessarar áætlunar. Tengivegir eru mikilvægir fyrir íbúa þessa lands, atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun. Tengivegir eru vegir utan þéttbýlis sem liggja af stofnvegi eða að stofnvegi. Íbúar í mínu kjördæmi sem nýta þessa vegi eru ekki par sáttir. Sveitarstjórnarkosningar snerust mikið um slæmt ásigkomulag vega í sveitarfélögum en sveitarstjórnir hafa ekkert um þetta að segja í raun. Því vil ég enn og aftur ítreka þá hugmynd, virðulegi forseti, að sveitarfélög geti sótt um fjármagn í pott til að hraða uppbyggingu á vegum. Sveitarfélögin væru ekki að taka við þessum vegum heldur einfaldlega að byggja þá upp fyrir hönd ríkisins því ríkið er augljóslega ekki að ná utan um þetta verkefni. Við þurfum fleiri hendur í þetta verkefni og því tel ég að þetta sé gott og gilt og ætti a.m.k. að prófa.
Í kafla aðgerðaáætlunarinnar þar sem farið er yfir markmið um jákvæða byggðaþróun sér maður að lítið er um aðgerðir, eins og ég kom inn á áður. Ég vil hnýta í aðgerðir um þróun samgöngukerfis á miðhálendi landsins. Ég hef unun af því að ferðast á miðhálendinu, bæði keyrandi og á hestbaki. Vegirnir þar eru í skötulíki og maður sér ferðamenn á misgóðum bílum þvera þessa vegi á sumrin. Það er gott og vel að marka stefnu um útfærslu hálendisvega en það þarf að gera betur til að auka öryggi ferðalanga á hálendinu.
Mitt uppáhaldsmarkmið í þessari samgönguáætlun er, með leyfi forseta, að „íbúar landsbyggðarinnar eigi kost á að komast til höfuðborgarsvæðisins á um 3,5 klst. samþættum ferðatíma akandi, með almenningsvagni, ferju og/eða flugi.“
Þegar ég horfi yfir kjördæmið mitt þá er þetta nánast óraunhæft markmið og engar aðgerðir koma á móti þessum markmiðum. Ég kemst akandi undan Eyjafjöllum á tveimur klukkustundum en ef ég tek t.d. íbúa Skaftárhrepps sem dæmi eru fjórir klukkutímar sirka í bíl frá Kirkjubæjarklaustri til Reykjavíkur. Það eru tveir og hálfur tími í næsta flugvöll sem er í Höfn í Hornafirði. Þetta markmið rétt næst ef fólk keyrir á næsta flugvöll og tekur flug á höfuðborgarsvæðið. Ég verð nú bara að segja að þessi samgönguáætlun er uppfull af svona skringilegum markmiðum.
Svo má nefna annað dæmi sem kemur fram í kaflanum um markmið um umhverfislega sjálfbærar samgöngur. Þar er tekið fram að unnið skuli ötullega að hagsmunagæslu í samgöngumálum á alþjóðlegum vettvangi. Er þarna verið að vísa í lofthelgi Íslands, skipaumferð eða hvað? Þetta er eitt dæmi um innantóm markmið þessarar samgönguáætlunar. Ég fæ ekki séð að það sé ein aðgerð helguð þessu markmiði. Íbúar kalla eftir alvöruaðgerðum í þessum málaflokki en ekki svona skringilegum markmiðum sem eru augljóslega innantóm. Ég a.m.k. hlakka til að sjá hvernig hæstv. ríkisstjórn mun fylgja þessu eftir.
Næst ætla ég að víkja að þeirri aðgerð sem kemur inn á eflingu á almenningssamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins. Þessari aðgerð er skipað með markmiðum um umhverfislega sjálfbærar samgöngur. Gott og vel. Almenningssamgöngur á þessari leið geta verið knúnar áfram með rafmagni en ég skil ekki flokkunina á þessari aðgerð. Með leyfi forseta, ætla ég að lesa hana orðrétt upp:
„Byggt á skýrslu starfshóps um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar verði kannaðir möguleikar og farið í aðgerðir til að efla almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.“
Vegagerðin, innviðaráðuneytið og Isavia bera ábyrgð á þessari aðgerð. Ég verð nú bara að segja það, virðulegur forseti, að ég skil þetta ekki og hverju hún á að skila. Það væri til bóta að auka val á ferðamátum frá Keflavíkurflugvelli. Ég styð það heils hugar en þetta er orðasalat sem ég næ ekki utan um og af hverju þessari aðgerð er skipað í sess með markmiðum um umhverfislega sjálfbærar samgöngur. Í markmiðum um greiðar samgöngur er þetta tekið fram undir d-lið. Kannski þarf hæstv. innviðaráðherra einfaldlega að endurskoða þessa áætlun, taka hana til baka og vinna betur.
Mér þykir miður að sjá að grjóthrunsvarnir við vegi landsins séu ekki í samgönguáætlun og að lítið mark sé tekið á þeim málaflokki. Undir markmiði um öruggar samgöngur er ekki að finna stakt orð um grjóthrunsvarnir. Þar var lagt fram mjög opið markmið sem er á þann veg að það eigi að vinna að úrbótum á stöðum þar sem mörg slys hafa orðið og umhverfið þar í kring bætt. Þetta er opið í annan endann og eins og með þetta og annað eru engar aðgerðir sem styðja þetta markmið.
Ég verð að hrósa því að það eigi að gera stefnu fyrir reiðvegi sem einlægur aðdáandi hestaferða og reiðmennsku. Hestaferðir með rekstri af hrossastóði krefjast þess að við þurfum oft að vera við þjóðvegi landsins, eðli málsins samkvæmt, sem er vel, en það er oft mjög misjafnt hvort reiðvegir séu einfaldlega til staðar. Ég er spennt að sjá forgangsröðun birtast og fara um þessa vegi í framtíðinni, vonandi í náinni framtíð.
Sú sem hér stendur hefur áhyggjur af þessari samgönguáætlun. Í henni má finna stór orð en lítið um aðgerðir og fjármagn. Þessi mál skipta fólkið í landinu miklu máli og ég óskaði eftir meiri metnaði frá hæstv. innviðaráðherra og hæstv. ríkisstjórn hvað þennan málaflokk varðar. — Ég hef lokið máli mínu, virðulegi forseti.