samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Já, ég skal fara betur yfir þessar hugmyndir mínar og sveitarstjóra Rangárþings eystra og þeirrar sveitarstjórnar. Þessi pottur gæti verið hluti af samgönguáætlun og ég hafði þá hugsað hann sem viðbót og að þarna væri fjármunum ráðstafað sem sveitarfélögin gætu sótt um og forgangsraðað þeim til þeirra verkefna sem þau teldu brýnust. Í mínu sveitarfélagi, Rangárþingi eystra, eru einmitt margir kílómetrar af ómalbikuðum vegum sem ég gæti talið hérna upp og geri það mögulega. En þetta væri val sem sveitarfélögin hefðu, þau væru ekki að taka við þessum vegum heldur einfaldlega að byggja þá upp.
Varðandi innviðafélagið. Ég er lögfræðingur, ég er ekki komin með málflutningsréttindi sem lögmaður, en það að taka þetta fjárveitingavald frá okkur sem sitjum í þessum sal og að við munum ekki hafa skoðun á þeim verkefnum sem innviðafélagið mun framkvæma, heldur þessi litla stjórn sem verður skipuð, er áhyggjuefni. Það veldur manni líka áhyggjum ef hæstv. ríkisstjórn finnst þetta í lagi. Hvað verður næst? Ég tel að það ætti að endurskoða þetta og mun kannski koma inn á það undir umræðum um innviðafélag sem við komumst vonandi í á næstu dögum.