157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:12]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er akkúrat einkennandi, ég get alveg tekið undir þær áhyggjur hv. þingmanns. Það er í auknum mæli verið að færa vald frá okkur hér sem sitjum í þessum sal til embættismanna og í þessu tilviki þá til stjórnar innviðafélagsins. Mikið af nýframkvæmdum sem koma fram í samgönguáætlun veltur mjög mikið á „ef“ og „hefði“ og „kannski mögulega“ og á því hvort innviðafélagið verði að veruleika. Mér finnst persónulega að við sem þingmenn eigum að sinna þessari forgangsröðun. Við eigum að taka ábyrgð á þessari forgangsröðun, ekki þriggja til fimm manna stjórn innviðafélags sem stendur til að stofna. En armslengdin er orðin áberandi, sem sagt að halda armslengd milli þingsins og ákvarðana sem eru teknar í þessu samfélagi, og það er akkúrat Viðreisn sem horfir mjög mikið þangað og þá sérstaklega með því að reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið. Ég tek bara undir þessar áhyggjur hv. þingmanns.