157. löggjafarþing — 123. fundur,  11. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:13]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína ræðu. Hv. þingmaður er þingmaður í Suðurkjördæmi. Að ferðast um Suðurkjördæmi er sérstakt vegna þess að þú getur eiginlega alltaf keyrt með ströndinni og það er varla neitt fjall sem þarf að fara yfir, nema Reynisfjall sem sumir kalla fjall og það er sennilega eini fjallvegurinn, fyrir utan Hellisheiði náttúrlega, á leiðinni frá Árborg að Hornafirði. Eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu þá er það ákveðið markmið í samgönguáætlun að hver og einn einasti eigi að geta haft tækifæri á því að komast til höfuðborgarinnar á þremur og hálfri klukkustund. Mig minnir að það hafi komið fram í ræðu hv. þingmanns að það séu svona sirka fjórir klukkutímar frá Kirkjubæjarklaustri til höfuðborgarinnar, nema þá að menn keyri í hina áttina og taki flug frá Hornafirði, sem er nú svona frekar langsótt, myndi ég halda. En aftur á móti er það þannig að á þessum vegi, frá Selfossi að Hornafirði, er gríðarlegur ferðamannastraumur. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Ef hún ætti að forgangsraða, á hvaða verki myndi hv. þingmaður vilja byrja á þessari leið? Hvað er algjört forgangsatriði, þ.e. á þjóðvegi 1, frá Selfossi að Höfn í Hornafirði?